Illindi í Ormpetarr
Illindi í Ormpetarr er ævintýri fyrir 4-6 hetjur á 1-2. leveli. Þá getur verið afar hjálplegt fyrir hetjurnar að hafa galdramann meðal sinna raða. Að spila í gegnum ævintýrið tekur um 3-5 klukkustundir. Auðveldlega má laga ævintýrið að minni eða stærri hópum sem og finna því stað í annarri borg. Fátt er meira rætt í Ormpetarr en uppgangur hins nýja þjófagildis¸ Járnrottanna. Þegar eiginkona Hiliars U'Lar¸ skraddara¸ er numin á brott er kominn tími til að gripið sé í taumana. Bók þessi er ætluð stjórnendum og má finna lýsingar á göldrum¸ hæfileikum¸ óvættum og reglum í Player's Handbook¸ Dungeon Master's Guide¸ Monsters Manual og Volo's Guide to Monsters. Þá er einnig ágætt að hafa Sword Coast Adventurer's Guide við höndina. Þetta ævintýri er hugsað fyrir stjórnendur sem eru að stíga sín fyrstu skref og inniheldur hugleiðingar og hugmyndir um hvernig er hægt að verða betri sögumaður. Þessar athugasemdir snúa þó ekki að kerfisbundnum þáttum heldur nær eingöngu að þeim þáttum sem auðvelda stjórnendum að segja góða sögu með leikmönnum. The Aranea Queen Campaign Trouble in Ironboot Mine Trouble under Arn Forest Trouble in Doomspire Darkness over Kryptgarden The Lost Tomb of the Dwarven Prince Return of the Warlock Sögur frá Ormpetarr Skuggasöngvar Nöðrudans